Ferill 306. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 306 . mál.


778. Frumvarp til laga



um breyting á lögum um vitamál, nr. 56/1981, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 23. febr.)



1. gr.


    11. gr. laganna orðast svo:
    Vitagjald skal greitt af brúttótonnatölu skips.
    Af öllum íslenskum skipum, stærri en 10 brúttótonn, skal greitt vitagjald einu sinni á ári. Af öllum erlendum skipum, sem setja farþega eða vörur á land, skal greitt vitagjald við hverja komu til landsins sem svarar til 1/ 4 hluta af almenna vitagjaldinu, mest fjórum sinnum á ári.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.