Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 277 . mál.
790. Frumvarp til laga
um listmenntun á háskólastigi.
(Eftir 2. umr., 23. febr.)
1. gr.
Menntamálaráðherra er heimilt að gera samning við lögaðila, félög eða stofnanir um að ann
Listmenntun á háskólastigi skal miðuð við að nemendur öðlist þekkingu og leikni til sjálf
2. gr.
Í samningi skv. 1. mgr. 1. gr. þessara laga skal m.a. kveðið á um á hvaða sviðum skuli veita háskólamenntun í listum, námskröfur og námsframboð. Enn fremur skal í samningnum kveða á um hvernig framlögum úr ríkissjóði skuli háttað. Fjárframlög skulu háð fjárveitingu í fjárlög
Fyrir lok fyrsta samningstímabilsins skulu óháðir sérfræðingar fengnir til að gera úttekt á starfsemi viðkomandi stofnunar í heild og skal skýrsla um niðurstöður úttektarinnar lögð fyrir Alþingi.
3. gr.
Nú gerir menntamálaráðherra samning um listmenntun á háskólastigi með heimild í 1. gr. þessara laga og frestast þá framkvæmd reglugerðar um Leiklistarskóla Íslands, nr. 190/1978, og laga um Myndlista- og handíðaskóla Íslands, nr. 38/1965, meðan á samningstíma stendur, enda verði í samningnum ákvæði um áframhald náms og námslok nemenda er þegar hafa innrit
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.