Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 339 . mál.


793. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985.

Frá félagsmálanefnd.



     1 .     Við 1. gr.
                   a .     Síðari málsliður fyrri efnismálsgreinar orðist svo: Lögreglustjórar skulu hafa samráð við sveitarstjórnir og almannavarnanefndir í umdæmi sínu, svo og Veðurstofu Íslands, við ráðningu þessara starfsmanna.
                   b .     Í stað 3. málsl. síðari efnismálsgreinar komi svohljóðandi málsliður: Veðurstofan skal annast þjálfun starfsmannanna.
     2 .     Á eftir 1. gr. komi tvær nýjar greinar er orðist svo:
                   a .     (2. gr.)
                            Á eftir 1. mgr. 7. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
                            Sé hagkvæmara talið, til að tryggja öryggi íbúa gagnvart ofanflóðum, er sveitar stjórn heimilt að gera tillögu um að kaupa húseignir í stað annarra varnaraðgerða sem ofanflóðasjóður fjármagnar að hluta eða öllu leyti samkvæmt þessum lögum. Um greiðslur til sveitarfélags vegna slíkra kaupa fer skv. 4. tölul. 1. mgr. 11. gr. Náist ekki samkomulag um kaup á húseign er sveitarstjórn heimilt að taka eignina eignarnámi.
                   b .     (3. gr.)
                            Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðast svo:
                            Sveitarstjórn ber ábyrgð á viðhaldi varnarvirkja.
     3 .     Við 2. gr. Eftirfarandi breytingar verði á fyrri efnismálsgrein:
                   a .     Við 1. tölul. bætist: í samræmi við nánari reglur sem félagsmálaráðherra setur.
                   b .     3. tölul. orðist svo: Greiða má allt að 100% af kostnaði við kaup og uppsetningu á tækjum og búnaði sem sérstaklega er aflað til rannsókna og eftirlits með ofanflóðahættu. Sama gildir um kostnað við rannsóknir sem miða að því að bæta hönnun og auka nýt ingu varnarmannvirkja.
                   c .     4. tölul. orðist svo: Greiða má allt að 90% af kostnaði við undirbúning og framkvæmdir við varnarvirki. Kostnaður við kaup á löndum, lóðum og húseignum auk kostnaðar við flutning þeirra vegna varna telst með framkvæmdakostnaði.
                   d .     5. tölul. falli brott.