Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 384 . mál.


806. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið sem kveður á um að á árunum 1995–99 verði innheimt 10% álag á iðgjöld Viðlagatryggingar Íslands og að tekjur af álaginu renni í ofanflóðasjóð, sbr. lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985.
    Nefndin fékk á sinn fund vegna málsins Dögg Pálsdóttur, skrifstofustjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi lagatæknilegri

BREYTINGU:



    Í stað „11. gr.“ í 1. og 3. málsl. efnismálsgreinar 1. gr. komi: 10. gr.

    Sólveig Pétursdóttir og Guðrún J. Halldórsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 23. febr. 1995.



    Gunnlaugur Stefánsson,     Tómas Ingi Olrich.     Ingibjörg Pálmadóttir,
    form., frsm.          með fyrirvara.

    Guðmundur Hallvarðsson.     Margrét Frímannsdóttir,     Finnur Ingólfsson,
         með fyrirvara.     með fyrirvara.

Sigríður A. Þórðardóttir.