Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 426 . mál.


835. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 9/1970, um Iðnþróunarsjóð.

(Eftir 2. umr., 24. febr.)



1. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
    Iðnþróunarsjóður er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins. Hann lýtur sérstakri stjórn samkvæmt lögum þessum.
    Ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum Iðnþróunarsjóðs.
    Heimili og varnarþing Iðnþróunarsjóðs er í Reykjavík. Seðlabanki Íslands veitir sjóðnum nauðsynlega fyrirgreiðslu og starfsaðstöðu.

2. gr.


    2. gr. laganna orðast svo:
    Hlutverk Iðnþróunarsjóðs er að stuðla að uppbyggingu alhliða og samkeppnishæfs atvinnu lífs á Íslandi.
    Iðnþróunarsjóður gegnir hlutverki sínu með því:
     1 .     að veita lán til ákveðinna verkefna, annaðhvort einn eða í samvinnu við aðra aðila,
     2 .     að ábyrgjast lán sem veitt eru af öðrum aðilum,
     3 .     að kaupa hlutabréf í nýjum og starfandi fyrirtækjum, enda verði að því stefnt að selja hlutabréfin strax og aðstæður leyfa og hagkvæmt þykir,
     4 .     að veita áhættulán til vöruþróunar og markaðstarfsemi og taka þátt í kostnaði við skilgreind þróunarverkefni í samræmi við hlutverk sjóðsins.
    Til verkefna skv. 3. og 4. tölul. 2. mgr. má Iðnþróunarsjóður ekki verja hærri fjárhæð en nemur allt að 10% af eigin fé í árslok 1994.

3. gr.


    3. gr. laganna orðast svo:
    Iðnþróunarsjóði er óheimilt að taka önnur lán en skammtímalán til að jafna sveiflur í greiðslustreymi sínu. Skammtímalán þessi má sjóðurinn ekki taka með útgáfu og sölu á skulda bréfum og öðrum endurgreiðanlegum skuldaviðurkenningum til almennings.

4. gr.


    4. gr. laganna orðast svo:
    Iðnaðarráðherra skipar þrjá menn í stjórn Iðnþróunarsjóðs og skal einn þeirra skipaður for maður stjórnar.
    Stjórn Iðnþróunarsjóðs hefur yfirumsjón með starfsemi sjóðsins og fer með allt vald í mál efnum hans sem ekki er öðrum falið samkvæmt lögum. Til ákvörðunar stjórnar þarf meiri hluta atkvæða.
    Stjórn Iðnþróunarsjóðs ákveður áherslur í starfi sjóðsins í samræmi við ákvæði 2. gr. og setur reglur um skilyrði fyrir þátttöku sjóðsins í verkefnum, um umsóknir þar að lútandi og um meðferð þeirra. Þess skal gætt að reglur um meðferð umsókna tryggi sem best óháða og faglega um fjöllun um þær.

5. gr.


    5. gr. laganna orðast svo:
    Stjórn Iðnþróunarsjóðs ræður honum framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri fer með daglega stjórn sjóðsins í umboði stjórnar hans og ræður starfsfólk sjóðsins.

6. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 9. mars 1995. Jafnframt fellur brott fylgiskjal með lögum nr. 9/1970, um Iðnþróunarsjóð.
    Lög nr. 9/1970 skulu endurskoðuð fyrir 1. maí 1996.