Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 339 . mál.
906. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985.
(Eftir 2. umr., 25. febr.)
1. gr.
6. gr. laganna orðast svo:
Lögreglustjórar skulu ráða starfsmenn til að kanna og fylgjast með landfræðilegum og veðurfarslegum aðstæðum með tilliti til hættu af snjóflóðum og/eða skriðuföllum í þeim umdæmum þar sem þörf er á slíkum athugunum að mati Almannavarna ríkisins. Lögreglu
Starfsmenn, sem ráðnir eru skv. 1. mgr., skulu starfa undir stjórn viðkomandi lögreglu
2. gr.
Á eftir 1. mgr. 7. gr. laganna kemur ný málsgrein er orðast svo:
Sé hagkvæmara talið, til að tryggja öryggi íbúa gagnvart ofanflóðum, er sveitarstjórn heimilt að gera tillögu um að kaupa húseignir í stað annarra varnaraðgerða sem ofanflóða
3. gr.
Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðast svo:
Sveitarstjórn ber ábyrgð á viðhaldi varnarvirkja.
4. gr.
11. gr. laganna orðast svo:
Fé ofanflóðasjóðs, sbr. 10. gr., skal notað til að greiða kostnað við varnir gegn ofanflóðum sem hér segir:
1 . Greiða skal allan kostnað vegna athugana skv. 6. gr. í samræmi við nánari reglur sem félagsmálaráðherra setur.
2 . Greiða skal allan kostnað við gerð hættumats.
3 . Greiða má allt að 100% af kostnaði við kaup og uppsetningu á tækjum og búnaði sem sérstaklega er aflað til rannsókna og eftirlits með ofanflóðahættu. Sama gildir um kostnað við rannsóknir sem miða að því að bæta hönnun og auka nýtingu varnarmannvirkja.
4 . Greiða má allt að 90% af kostnaði við undirbúning og framkvæmdir við varnarvirki. Kostnaður við kaup á löndum, lóðum og húseignum auk kostnaðar við flutning þeirra vegna varna telst með framkvæmdakostnaði.
5 . Greiða má allt að 60% af kostnaði við viðhald varnarvirkja.
Félagsmálaráðherra ákveður úthlutun úr ofanflóðasjóði að fengnum tillögum Al
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.