[13:36]
Aldursforseti (Ragnar Arnalds) :
Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. þingskapa skal nú kjósa 9 þingmenn í nefnd til þess að prófa kjörbréf og kosningu nýkjörinna þingmanna og varaþingmanna og bið ég um lista.
Fram kom einn listi sem á voru jafnmörg nöfn samtals og menn skyldi kjósa. Samkvæmt því lýsti forseti yfir að kosin væru án atkvæðagreiðslu:
Sólveig Pétursdóttir,
Valgerður Sverrisdóttir,
Geir H. Haarde,
Ragnar Arnalds,
Tómas Ingi Olrich,
Magnús Stefánsson,
Rannveig Guðmundsdóttir,
Einar K. Guðfinnsson,
Ásta R. Jóhannesdóttir.