Aldursforseti (Ragnar Arnalds) :
Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Ég óska eftir tilnefningum.
Tilnefning hefur borist um Ólaf G. Einarsson, 1. þm. Reykn. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Ólafur G. Einarsson er því einn í kjöri. Ég vil sérstaklega taka það fram að atkvæði sem falla á aðra dæmast ógild samkvæmt þingsköpum. Hefst nú kosningin og ég bið þingverði að útbýta atkvæðaseðlum.
Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Ólafur G. Einarsson, 1. þm. Reykn., hlaut 45 atkvæði en 15 seðlar voru auðir.