Forseti (Ólafur G. Einarsson)
:
Hæstv. fjmrh. hefur þegar talað tvisvar og óheppilegt að beint sé til hans fyrirspurnum úr ræðustól þegar hann á ekki kost á að koma að nýju í ræðustólinn.
Vegna orða hv. 8. þm. Reykn. vill forseti upplýsa að hann ræddi við formann Alþb. í morgun og gerði honum grein fyrir þessari ósk fjmrh. og forseta var kunnugt að það yrðu gerðar athugasemdir. Þær hafa þegar komið fram.