Verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

3. fundur
Föstudaginn 19. maí 1995, kl. 11:48:17 (64)


[11:48]
     Ögmundur Jónasson (andsvar) :
    Þingforseti. Ég vil lýsa sérstakri ánægju með svar heibrrh. Mér finnst felast í því skilningur á alvöru málsins. Mér finnst felast í því að hæstv. heilbrrh. ætlar að láta kanna þessi mál mjög rækilega, ætlar að leita til þeirra aðila sem um þessi mál fjalla í þjóðlífinu og ég vona að það verði unnið ötullega að því núna á næstu vikum og mánuðum þannig að þegar þetta mál verði tekið fyrir í haust að rækilega og vel athuguðu máli þá liggi þessar upplýsingar allar fyrir.
    Ég vil einnig þakka hæstv. fjmrh. fyrir að ætla að kanna nánar hvaða breytingar sé verið að gera á þessari stofnun, ÁTVR, hvaðan frumkvæði kom um þær breytingar sem ég vék að áðan og ég bíð spenntur eftir að fá þær upplýsingar tilreiddar hér í ræðustól.