Uppsögn sérkjarasamninga hjúkrunarfræðinga

4. fundur
Mánudaginn 22. maí 1995, kl. 15:34:43 (94)



     Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
    Samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa skal umræða utan dagskrár standa aðeins í hálfa klukkustund og skerðist nú mjög um tímann. Hv. fyrirspyrjandi og hæstv. ráðherra fá að sjálfsögðu orðið en ég bið hv. aðra þingmenn að nýta sér ekki réttinn nema þeir telji sig nauðsynlega þurfa.