Verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

4. fundur
Mánudaginn 22. maí 1995, kl. 18:36:33 (130)

     Forseti (Guðni Ágústsson) :
    Forseti vill segja það um þetta mál að úrskurðurinn liggur ekki fyrir en því er lýst hér yfir að hann verður kynntur hér fyrir atkvæðagreiðslu. Aðalforseti verður ekki meira við hér í kvöld þannig að ég vil biðja þingmenn um að bíða þeirrar niðurstöðu. Sá forseti sem nú stýrir fundi hefur auðvitað enga hugmynd hvernig úrskurðurinn muni hljóða frekar en aðrir þingmenn. Við verðum því að bíða þeirrar stundar að hann verði felldur.