Tilkynning um utandagskrárumræðu

5. fundur
Þriðjudaginn 23. maí 1995, kl. 13:34:39 (147)


     Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
     Forseti vill upplýsa að kl. 18 í dag fer fram utandagskrárumræða um sumarlokanir sjúkrahúsa. Málshefjandi er hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir og hæstv. heilbr.- og trmrh. verður til andsvara.