Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
Um kl. 2, að loknu 1. dagskrármáli, fer fram utandagskrárumræða að beiðni hv. 11. þm. Reykn., Ágústs Einarssonar, um boðað verkfall á fiskiskipum. Hæstv. sjútvrh. verður til andsvara. Atkvæðagreiðslur verða svo að lokinni þeirri umræðu.