Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
Enn eru fimm hv. alþingismenn á mælendaskrá og einungis 5 mínútur eftir af tímanum. Auk þess eiga málshefjandi og hæstv. ráðherra væntanlega eftir að koma í ræðustól þannig að ég bið þá sem næstir eru í ræðustól að reyna að stytta mál sitt svo að allir megi komast að.