[14:54]
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Það virðist ríkja nokkur samkeppni um tillöguflutning um jafnréttismál á milli þingflokka stjórnarandstöðunnar. Ég legg þann skilning í það að þeim þyki árangur þriggja fyrrv. félmrh. í jafnréttismálum, ráðherra sem hafa verið í félmrn. samtals upp á átta ár, ekki upp á marga fiska. Þessi tillaga sem hér er á ferðinni er svipaðs eðlis og tillaga hv. þm. frá Kvennalistanum sem hér var til fróðlegrar umræðu í gær. Það vekur sérstaka athygli mína með þessa tillögu að annar hv. flm. hefur verið í lykilstarfi hjá Alþýðusambandi Íslands og hinn var forðum aðstoðarmaður fyrrv. fjmrh. Ólafs Ragnars Grímssonar og nú flokkssystir hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur sem, eins og allir muna, var lengi hæstv. félmrh.
Ég tel að forsenda þess að unnt sé að leiðrétta þennan kynbundna óverjandi launamun sé samstarf heildarsamtaka aðila vinnumarkaðarins. Það er mikið áhyggjuefni hve lítið hefur áunnist í þessu efni, reyndar ekki áunnist vegna þess að í mörgum tilfellum hefur okkur miðað aftur á bak.
Fyrrv. verkefnisstjóri norræna jafnlaunaverkefnisins sem einnig hefur gegnt um langa hríð ritstjórastarfi Vikublaðins, málgagni Alþb., Hildur Jónsdóttir, tjáði sig mjög afdráttarlaust um þetta mál í Tímanum 10. júní 1992, þ.e. fyrir þrem árum síðan. Ritstjórinn sagði þar að verkalýðshreyfingin hefði aldrei sett spurningarmerki við rétt atvinnurekenda til að yfirborga eins og þeir teldu sér henta. Hún tekur líka fram í þessu viðtali að verkalýðshreyfingin hafi aldrei látið sig þessi mál, þ.e. yfirborganir og aukagreiðslur, neinu
skipta. En ætli það geti ekki skeð að einmitt yfirborganirnar séu í mörgum tilfellum rótin að þessum launamun karla og kvenna. Mig langar að fá upplýsingar um það frá hv. flm. hvort þær eru sammála þessu áliti fyrrv. verkefnisstjóra norræna jafnlaunaverkefnisins.
Ég tel að það gildi í stórum dráttum það sem ég sagði í gær um hina tillöguna. Ég tel að þessi tillaga þurfi ekki endilega, ekki fremur en hin, að fá formlega afgreiðslu á þessu þingi, en er sjálfsagt innlegg í hugmyndabanka þann sem unnið verður úr. Það fer fram úttekt á gildandi jafnréttisáætlun samkvæmt lögum og það verður farið yfir framkvæmdaáætlunina og henni breytt eftir því sem ástæða þykir til. Og eins og ég hef áður sagt, þá reikna ég með að því verki verði lokið í haust og málið komi þá til umfjöllunar.