Forseti (Ólafur G. Einarsson) :
Vegna þessara orða hv. 17. þm. Reykv. vill forseti upplýsa það, sem raunar allir ættu að vita, að ákvörðun um þingfrestun og hvaða mál verða afgreidd á þessu þingi verður tekin hér, vonandi í góðu samstarfi forseta, ríkisstjórnar og formanna þingflokka. Tilkynning frá Brussel um þessi atriði hefur því ekki þýðingu fyrir þingstörfin hér og nú. Um þetta hefur forseti ekki meira að segja.