Aðskilnaður dómsvalds og umboðsvalds í héraði

8. fundur
Mánudaginn 29. maí 1995, kl. 17:31:50 (299)


[17:31]
     Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég ítreka að hér er um heimild að ræða eins og ég hef áður sagt og vonandi verður hún ekki almennt nýtt. Ég get vissulega tekið undir ýmis orð og ábendingar hv. þm. hér áðan. En

þetta mál lá hins vegar ekki þannig fyrir nefndinni að við værum að taka ákvörðun um það eða koma með ábendingar í þá veru að það þyrfti að fjölga dómurum. Hins vegar var þetta mál brýnt sem við álitum að þyrfti að taka strax á.