Stjórn fiskveiða

16. fundur
Fimmtudaginn 08. júní 1995, kl. 22:57:51 (562)


[22:57]
     Einar Oddur Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Það var tvennt í máli hv. 15. þm. Reykv. sem ég ætla aðeins að gera athugasemdir við. Í umræðunni um tæknilegu hlutina er það ekki rétt sem kom fram að það væru svo miklir annmarkar á þessu. Það er vegna þess að gagnvart ,,shadow-lightinu`` höfum við verið að nota austurtunglið og það gefur skugga á Vestfjörðum en færum við yfir á vesturtunglið mun þetta allt saman verða mjög skýrt eins og menn ætla að það verði. Hæstv. ráðherra mun komast að því að það eru ekki tæknileg vandamál í sambandi við þetta. það eru aðeins spurningar um nokkra daga. Hinu vil ég vekja athygli hv. þm. á að þó ég hafi ekki kannað til hlítar hver áhrif banndaganna verða á róðrana býður mér samt í grun að sama hvernig umræðan og lögin verða sett verði allir kostir hörmulegir fyrir sjómenn í þessu kerfi nema til komi það sem við félagarnir, ég og hv. 15. þm. Reykv., höfum boðað að við ætlum að flytja hér brtt. við 3. umr. um að rýmka þetta í nokkur ár þannig að þetta verði bærilegt fyrir þessa sjómenn. Það er aðalatriði málsins að þetta verði rýmkað. Öðruvísi verður róðrardagakerfið eða banndagakerfið óbærilegt.