Framleiðsla og sala á búvörum

17. fundur
Föstudaginn 09. júní 1995, kl. 14:08:43 (578)

     Forseti (Ragnar Arnalds) :
    Eins og hv. þm. er kunnugt hefur verið boðað að fundinum verði senn lokið og nýr fundur settur og leitað afbrigða um tvö mál sem þurfa að komast til meðferðar. Það mál sem er nú til umræðu er ekki á dagskrá næsta fundar þannig að ég vildi freista þess að ljúka umræðunni áður en nýr fundur verður settur í trausti þess að umræðan dragist ekki nema stutta stund.