Gjald af áfengi

18. fundur
Föstudaginn 09. júní 1995, kl. 18:44:48 (617)


[18:44]
     Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson las hér upp hina miklu fjölgun sem hefur orðið af vínveitingaleyfum og mig langar að spyrja hv. þm. Svavar Gestsson: Vill hann banna vínveitingahús í landinu og vill hann banna innflutning á áfengi? Ég skil orð hans þannig að honum finnist að það þurfi að fækka vínveitingahúsum og þá eiga menn bara að segja það hreint út. ( SvG: Hvað vill ráðherrann?) Já, því skal ég svara, hv. þm. Ráðherra hefur ákveðið að leggja fram frv. um áfengis- og vímuefnavarnir í haust og ég vona að hv. þm. muni standa með mér varðandi það frv. og ég hlakka til að heyra í þeim þá þegar það verður lagt fram.