Framhald umræðu um húsnæðismál

19. fundur
Laugardaginn 10. júní 1995, kl. 12:22:32 (634)


[12:22]
     Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Bara svo að það þurfi ekki að bíða mánudags eða næstu viku, þá get ég upplýst að ég ætla ekki að beita mér fyrir því að afnema húsbréfakerfið, enda er það ekkert einfalt. Það er ekkert einfalt að snúa sig út úr því.
    Það er rétt að húsbréfakerfið hefur ekki reynst eins og ætlast var til. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir gerði okkur ekki grein fyrir því og gerði fólkinu í landinu ekki grein fyrir því að afföllin í húsbréfakerfinu yrðu 25%. Það var ekki minnst á það þegar verið var að afgreiða lög um húsbréfakerfið hér . . .  
    ( Forseti (StB) : Forseti vill áminna hv. þingmenn og hæstv. félmrh. um það að hefja ekki efnislega umræðu hér um stjórn fundarins.)
    Herra forseti. Ég tek mark á þessum orðum og ég skal láta máli mínu lokið. Frv. framsóknarmannanna verður að sjálfsögðu til athugunar í greiðsluaðlögunarnefndinni.