[13:45]
Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þeirri spurningu hv. 8. þm. Reykv. hvað þetta tölvuforrit heitir sem mun vera í Stjórnarráðinu get ég ekki svarað. Það hlýtur hv. þm. að þekkja mun betur heldur en ég þar sem hv. þm. hefur gegnt ráðherraembætti í mun lengri tíma en sá sem hér stendur. Hafi það verið til þarna upp frá þekki ég það ekki en það er gott að hv. þm. skuli vita að það er til.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
19. fundur
Laugardaginn 10. júní 1995, kl. 13:45:36 (652)