Stjórn fiskveiða

20. fundur
Mánudaginn 12. júní 1995, kl. 16:09:58 (702)


[16:09]
     Guðný Guðbjörnsdóttir :
    Herra forseti. Þar sem við kvennalistakonur eigum ekki aðild að sjútvn. þá vil ég að það komi skýrt fram að við styðjum þessa tillögu minni hluta sjútvn. og einnig hina sem var greitt atkvæði um hér áðan um róðrardagakerfið. Við eigum sem sagt aðeins áheyrnaraðild og við styðjum þetta minnihlutaálit og ég segi já.