Verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

21. fundur
Þriðjudaginn 13. júní 1995, kl. 19:02:10 (810)

     Forseti (Guðni Ágústsson) :
    Vegna þessarar ræðu vill forseti segja það að í kvöldmatartímanum mun forseti hitta formenn þingflokka og fara yfir þinghaldið. Mér var það alla vega ljóst eftir þingflokksfundi í dag og reyndar í gær og sem einum af forsetum þingsins að það yrðu kvöldfundir bæði í gærkvöld og í kvöld. Það er stefnt að því að ljúka þessu þinghaldi sem allra fyrst og ég vona að það náist samstaða um það. En þetta verður rætt í kvöldmatartímanum og skýrist þá um hálfníuleytið. Mun því forseti nú fresta þessum fundi og hefst fundur aftur kl. 20.30.
[Fundarhlé. --- 19:03]