[22:35]
Einar Oddur Kristjánsson (andsvar) :
Herra forseti. Þessi barátta öll snýst um að afnema þau þrælalög sem þessir hv. þm. stóðu að að setja fyrir rúmu ári. Það er ekki annað. ( EgJ: Áttu frumkvæði að.) Var stoltur af og fleiri hans vinir og bræður. Það lá fyrir, hv. 15. þm. Reykv., og þú vissir það allan tímann að ég vildi og reyndi eins og ég gat að fá þetta róðrardagakerfi lögfest og þú fylgdist með því frá klukkutíma til klukkutíma að ég ætlaði mér að reyna allt til þess að ná þessu og það tókst og ég tók það fram við þig og taldi það skipta öllu
máli. Og mér tókst líka að fá það samþykkt og okkur í nefndinni, meiri hlutanum, að það var opnað milli tímabila. Það er rangt hjá þér sem þú sagðir. Herra forseti, það er rangt hjá hv. þm. Það tókst sem við ætluðum okkur og við tókum það fram yfir. Það veistu.