Málefni Brunamálastofnunar

25. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 10:31:20 (929)


     Forseti (Ragnar Arnalds) :
    Nú fer fram utandagskrárumræða um málefni Brunamálastofnunar. Hæstv. félmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa. Um er að ræða hálftíma umræðu þar sem frummælandi og hæstv. ráðherra hafa 5 mínútur hvor, en að öðru leyti er ræðutími 2 mínútur.