Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Brunamálastofnun

25. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 11:01:50 (940)

     Forseti (Ragnar Arnalds) :
    Forseti vill taka það fram að hann er ekki reiðubúinn að hefja hér umræður um vinnuaðferðir Ríkisendurskoðunar, en það mun vera rétt sem hefur komið fram að sumum skýrslum Ríkisendurskoðunar er dreift en öðrum ekki. Það er sjálfsagt að það mál verði nánar skoðað og ég verð að láta þessa stuttu athugasemd mína nægja að sinni.