Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 8 . mál.


8. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um opinbera fjölskyldustefnu og fullgildingu samþykktar um starfsfólk með fjölskylduábyrgð.

Frá Bryndísi Hlöðversdóttur.



     1 .     Hyggst ráðherra fylgja eftir tillögum landsnefndar um ár fjölskyldunnar 1994 um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar?
     2 .     Hyggst ráðherra fylgja eftir tillögum sömu nefndar um að fullgilda samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 156 um starfsfólk með fjölskylduábyrgð?