Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 32 . mál.


36. Tillaga til þingsályktunar



um mótmæli til breskra stjórnvalda gegn förgun olíupallsins Brent Spar.

Frá umhverfisnefnd.



    Alþingi ályktar að mótmæla harðlega þeirri ákvörðun breskra stjórnvalda að veita Shell-ol íufélaginu leyfi til að sökkva olíupallinum Brent Spar með margvíslegum eiturefnum í Atl antshaf og gerir kröfu til að leyfið verði afturkallað þegar í stað.

Greinargerð.


    Í febrúar 1995 veittu bresk stjórnvöld Shell-olíufélaginu leyfi til að sökkva úreltum olíu palli, sem ber heitið Brent Spar, í hafið milli Skotlands og Íslands. Ráðgert er af hálfu Shell að hefja undirbúning að förgun á næstu dögum. Þessi ákvörðun er í hrópandi ósamræmi við nútímaviðhorf til umhverfisverndar og byggist á ófullnægjandi upplýsingum. Hún brýtur jafn framt gegn ákvæðum og anda alþjóðasamninga og sáttmála eins og Óslóarsáttmálans, OSPAR-samningsins og Lundúnasáttmálans. Mörgum spurningum er ósvarað varðandi tækni legar lausnir við slíka förgun, kostnað og umhverfisáhrif. Um borð í Brent Spar er að finna umtalsvert magn eiturefna, þar með talið PCB og þungmálma, fyrir utan olíuefni og lággeisla virk efni.
    Hafa ber í huga að innan skamms þarf að úrelda fjölda olíupalla sem nú eru starfræktir í Norðursjó og förgun Brent Spar í hafið mundi skapa afar viðsjárvert fordæmi. Jafnframt væri með því verið að gera að engu mikilsvert starf á alþjóðavettvangi til að koma í veg fyrir meng un sjávar. Í stað förgunar í sjó ber að draga úrelta olíupalla að landi og eyða þeim þar og end urvinna efni þeirra. Benda má á bandaríska löggjöf í þessu sambandi, en frá árinu 1987 hafa mörg hundruð olíupallar í Mexíkóflóa verið dregnir að landi til förgunar, þar af ekki færri en 20 í eigu Shell. Svipaðar hugmyndir eru uppi um förgun norskra olíupalla, m.a. N.E. Frigg sem er af svipaðri gerð og Brent Spar.
    Þann 8.–9. júní 1995 koma ráðherrar frá níu löndum sem láta sig varða umhverfi Norðursjávar saman til fundar í Danmörku. Þess er að vænta að ekkert verði aðhafst varðandi förg un Brent Spar olíupallsins fyrir þann tíma og að ráðherrafundurinn láti mál þetta til sín taka.
    Íslendingar, sem byggja efnahag sinn á fiskveiðum, gera kröfu til að ekkert verði aðhafst sem spillt geti vistkerfum Norður-Atlantshafs. Því hlýtur Alþingi að mótmæla harðlega áform um um förgun Brent Spar, sem og annarra olíupalla, í hafið.