Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 6 . mál.


46. Breytingartillögur



við frv. til breyt. á áfengislögum, nr. 82 2. júlí 1969, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar (SP, HjálmJ, ÁRÁ, MS, ÓÖH, KPál, LB).



     1.     Við 5. gr. Eftirfarandi breytingar verði á b-lið greinarinnar:
                   a.     2. tölul. orðist svo: Innflytjendur áfengis og heildsalar sem leyfi hafa samkvæmt lögum um verslun ríkisins með áfengi og tóbak; þó einungis til þeirra sem um ræðir í 1., 3.–5. og 7. tölul., svo og til sölu úr landi, til þeirra sem njóta úrlendisréttar og í tollfrjálsar forðageymslur. Þá hefur innflytjandi heimild til að selja áfengi þeim sem hafa leyfi til að selja áfengi í heildsölu.
                   b.     3. tölul. orðist svo: Framleiðendur áfengra drykkja, sbr. lög um verslun ríkisins með áfengi og tóbak; þó einungis til þeirra sem um ræðir í 1., 4. og 5. tölul., til heildsala skv. 2. tölul., svo og til sölu úr landi, til þeirra sem njóta úrlendisréttar og í tollfrjálsar forðageymslur.
     2.     Á eftir 5. gr. komi þrjár nýjar greinar er orðist svo:
                   a.     (6. gr.)
                            Í stað 2. og 3. mgr. 15. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
                            Auk eftirlits með veitingastöðum, sem leyfi hafa til áfengisveitinga, sbr. 5. og 6. mgr. 12. gr., skulu lögreglumenn gefa sérstakar gætur að starfsemi þeirra sem heimild hafa til framleiðslu eða sölu áfengis, sbr. 2. og 3. tölul. 11. gr., og þeirra sem hafa leyfi til að veita áfengi skv. 2. mgr. 20. gr. Í reglugerð skal kveða nánar á um eftirlit þetta.
                            Skattstjórar skulu láta lögreglustjórum í té skrá yfir þá aðila sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. laga um gjald af áfengi.
                   b.     (7. gr.)
                            4. og 5. mgr. 16. gr. laganna falla brott.
                   c.     (8. gr.)
                            Á eftir 16. gr. laganna kemur ný grein sem verður 16. gr. a og orðast svo:
                            Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýs ingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu.
                            Með auglýsingu er átt við hvers konar tilkynningar til almennings vegna markaðs setningar þar sem sýndar eru í máli eða myndum áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyslu, svo sem áfengisvöruheiti eða auðkenni, eftirlíkingar af áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnaður, útstillingar, dreifingu prentaðs máls og vörusýnis horna og þess háttar.
                            Bannið tekur með sama hætti til auglýsinga sem eingöngu fela í sér firmanafn og/eða firmamerki áfengisframleiðanda. Þó er framleiðanda, sem auk áfengis fram leiðir aðrar drykkjarvörur, heimilt að nota firmanafn eða merki í tengslum við auglýs ingu þeirra drykkja enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skiln ingi laganna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.
                            Undanþegið banni við áfengisauglýsingum er:
                  1.    Auglýsingar á erlendum tungumálum í erlendum prentritum sem flutt eru til landsins, nema megintilgangur ritsins eða innflutningsins sé að auglýsa áfengi.
                  2.    Auðkenni með firmanafni og/eða firmamerki á venjulegum búnaði til áfengisveitinga á veitingastað þar sem áfengisveitingar eru heimilaðar.
                  3.    Auðkenni með firmanafni og/eða firmamerki á flutningatækjum áfengisframleiðanda, vöruumbúðum, bréfsefni eða öðru sem beinlínis tengist starfsemi hans.
     3.     Við 7. gr. (er verði 10. gr.). Greinin orðist svo:
                  Eftirtaldar breytingar verða á 19. gr. laganna:
                   a.     Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein svohljóðandi:
                            Með sama hætti skal refsa þeim er hefur áfengi í vörslu sinni sem látið hefur verið af hendi andstætt ákvæðum 18. gr.
                   b.     Í stað orðanna „Enn fremur er þeim heimilt“ í 2. mgr. (verður 3. mgr.) kemur: Heimilt er.
     4.     Við 8. gr. Greinin falli brott.