Ferill 39. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 39 . mál.


52. Frumvarp til laga



um breytingu á útvarpslögum, nr. 68/1985, með síðari breytingum.

Frá menntamálanefnd.



1. gr.


    Við 1. gr. laganna bætast tvær málsgreinar, svohljóðandi:
    Læst útsending er hljóðvarps- eða sjónvarpsútsending ætluð almenningi þar sem hljóð- eða myndmerkjum hefur verið breytt í því skyni að veita einungis þeim aðgang að útsendingunni sem greitt hafa fyrir hana (áskrifendum).
    Myndlykill er búnaður sem einum sér eða með öðrum búnaði er ætlað að veita aðgang að innihaldi læstrar útsendingar.

2. gr.


    Á eftir 37. gr. laganna kemur ný grein, 37. gr. a, svohljóðandi:
    Óheimilt er að framleiða, afhenda, leigja, setja upp eða gera við myndlykla í því skyni að veita einhverjum utan hóps áskrifenda aðgang að innihaldi læstrar útsendingar.
    Óheimilt er að nota myndlykil til þess að taka á móti læstri útsendingu án þess að greiða áskriftargjaldið.
    Brot gegn ákvæðum 1. mgr. varðar sektum eða varðhaldi allt að sex mánuðum. Tilraun til brots og hlutdeild í brotum er refsiverð samkvæmt ákvæðum III. kafla almennra hegningar laga.
    Hluti og búnað, sem notaðir hafa verið við brot gegn ákvæðum 1. og 2. mgr., skal gera upp tæka, nema þeir séu eign aðila sem ekki er við brotið riðinn. Ávinning, sem aflað hefur verið með broti, skal gera upptækan.
    Hið upptæka skal vera eign ríkissjóðs. Hafi einhver beðið tjón við brotið skal sá eiga for gang til andvirðis hins upptæka ef bætur fást ekki á annan hátt.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Nefndin hefur haft til umfjöllunar frumvarp menntamálaráðherra um bann við gerð og notkun myndlykla til þess að fá aðgang að læstum útvarpssendingum án greiðslu áskriftar gjalds, 22. mál þingsins. Við athugun nefndarinnar kom í ljós að betur færi á því að ákvæði frumvarpsins væru felld inn í útvarpslög en að sett væru sérstök lög um málið. Ákvað nefndin því að velja þann kost að flytja sjálfstætt frumvarp um málið sem er efnislega samhljóða frum varpi menntamálaráðherra að öðru leyti en því að bætt er inn í 2. gr. frumvarpsins að auk til raunar til brots teljist hlutdeild í brotum jafnframt refsiverð samkvæmt ákvæðum III. kafla al mennra hegningarlaga. Um nánari skýringu vísast til greinargerðar með 22. máli á þskj. 22.