Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 43 . mál.


118. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 28/1985, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 15. júní.)



1. gr.


    1. tölul. 10. gr. verður svohljóðandi: 5% af árlegum heildariðgjaldatekjum Viðlagatrygg ingar Íslands. Á árunum 1995–99, eða vegna fimm næstu iðgjaldaára, verða þær þó 10% aukaálag á iðgjöld viðlagatrygginga samkvæmt lögum nr. 36/1995 og á árunum 1995–2000, eða vegna sex næstu iðgjaldaára, 38% af heildariðgjaldatekjum Viðlagatryggingar Íslands.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.