Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 42 . mál.


135. Frumvarp til laga



um úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

(Eftir 2. umr., 15. júní.)


    

1. gr.


    Setja skal á fót nefnd er hafi það hlutverk að ákveða fiskverð sem nota skal við uppgjör á aflahlut áhafnar einstakra skipa svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
    Í nefndinni eiga sæti sjö menn, einn tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Ís lands, einn af Sjómannasambandi Íslands, einn af Vélstjórafélagi Íslands, þrír af Landssam bandi íslenskra útvegsmanna og formaður sem sjávarútvegsráðherra skipar að höfðu samráði við framangreind samtök sjómanna og útvegsmanna. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt og aðalmenn.
    Úrskurðarnefnd ræður starfsfólk eða semur við aðra aðila um að annast starfsemi fyrir nefndina eftir því sem hagkvæmt þykir.
    

2. gr.


    Úrskurðarnefnd skal afla ítarlegra gagna um fiskverð. Skal hún með skipulögðum hætti vinna úr upplýsingunum sundurliðað yfirlit um fiskverð á einstökum landsvæðum. Nefndin skal reglulega birta upplýsingar um fiskverð þannig að þær gagnist útvegsmönnum og sjó mönnum sem best. Þá skal nefndin afla gagna um afurðaverð og horfur um þróun þess.
    

3. gr.


    Takist ekki samningar milli útgerðar og áhafnar fiskiskips um fiskverð sem nota skal við uppgjör á aflahlut þegar afli skipsins er afhentur eða seldur aðila sem telst skyldur útgerðinni geta þau heildarsamtök sjómanna og útvegsmanna sem standa að tilnefningu úrskurðarnefndar skv. 1. gr. hvor um sig skotið málinu til úrlausnar nefndarinnar, í samræmi við ákvæði kjara samninga aðila þar að lútandi.
    Á sama hátt geta heildarsamtök sjómanna skotið til nefndarinnar ákvörðun fiskverðs í við skiptum útgerðar við aðila sem ekki telst skyldur útgerðinni ef samningar um slíkt verð hafa ekki tekist innan fimm daga frá því að áhöfn skips óskaði slíkra samninga.
    Útgerð og viðskiptaaðili hennar teljast skyld í þessu sambandi ef þau eru í eigu eða rekstri sama aðila, eða ef sami aðili á meiri hluta beggja fyrirtækjanna, svo sem meiri hluta stofnfjár eða hlutafjár eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar í þeim báðum eða hefur með öðrum hætti raunveruleg yfirráð þeirra beggja. Sama á við ef annað fyrirtækið hefur raunveruleg yfirráð yfir hinu með eignaraðild, atkvæðisrétti eða með öðrum hætti.

4. gr.


    Úrskurðarnefnd skal ákvarða fiskverð til uppgjörs á aflahlut sjómanna í þeim tilvikum sem til hennar er skotið skv. 3. gr. Gildir ákvörðunin eingöngu um fiskverð gagnvart áhöfn þess skips sem málskotið varðar en ekki gagnvart áhöfnum annarra skipa sömu útgerðar. Ákvörðun nefndarinnar um fiskverð í viðskiptum milli óskyldra aðila, sbr. 3. gr., gildir um verð í öllum slíkum viðskiptum á gildistíma ákvörðunar.
    Ákvörðun nefndarinnar nær til verðs fyrir afla sem landað er eftir að málinu var skotið til hennar ef ákvörðun varðar viðskipti milli skyldra aðila, en til verðs fyrir afla sem landað er eftir að ákvörðun nefndarinnar er tilkynnt aðilum ef hún varðar viðskipti milli óskyldra aðila. Nefndin ákveður sjálf hversu lengi ákvörðun hennar skuli gilda. Þó skal hún aldrei gilda leng ur en í þrjá mánuði.
    Ákvörðun nefndarinnar um fiskverð, hvort sem hún varðar viðskipti milli skyldra aðila eða óskyldra, gildir ekki þegar afli er seldur á innlendum eða erlendum uppboðsmörkuðum.
    

5. gr.


    Úrskurðarnefnd skal við ákvörðun sína taka mið af upplýsingum sem safnað hefur verið á hennar vegum skv. 2. gr.
    Nefndin skal við ákvörðun sína taka mið af því fiskverði sem algengast er við sambærilega ráðstöfun afla. Skal í því sambandi tekið mið af verði í nærliggjandi byggðarlögum fyrir sam bærilegan fisk að stærð og gæðum. Þá skal nefndin taka tillit til líklegrar þróunar afurðaverðs. Varði ákvörðun nefndarinnar fiskverð í skiptum óskyldra aðila skal og taka tillit til heildarráð stöfunar á afla skips.
    

6. gr.


    Úrskurðarnefnd skal leita upplýsinga hjá útgerð og áhöfn um öll þau atriði er máli kunna að skipta varðandi úrlausn í tilteknu máli. Er þessum aðilum svo og þeim aðilum sem hafa átt viðskipti með afla við útgerðina skylt að veita nefndinni allar þær upplýsingar er máli geta skipt og aðgang að öllum gögnum sem þýðingu hafa.     
    

7. gr.


    Þegar eftir að máli er skotið til úrskurðarnefndar skulu þeir nefndarmenn, sem tilnefndir eru af heildarsamtökum sjómanna og útvegsmanna, taka málið til umfjöllunar. Nái þeir ekki samkomulagi um ákvörðun fiskverðs innan 14 daga ef málið varðar fiskverð í viðskiptum skyldra aðila en innan sjö daga varði málið viðskipti óskyldra skal málið tekið fyrir í fullskip aðri nefnd og skal hún kveða upp úrskurð innan sjö daga ef málið varðar fiskverð í viðskiptum skyldra en innan fjögurra daga varði málið viðskipti óskyldra.
    Samkomulagi nefndarinnar um fiskverð skulu fylgja forsendur þess en úrskurður fullskip aðrar nefndar skal vera rökstuddur.
    

8. gr.


    Ákvörðun úrskurðarnefndar um fiskverð hvort sem hún byggist á samkomulagi eða úr skurði er bindandi gagnvart útgerð og allri áhöfn skips á gildistíma hennar og er óheimilt að semja um annað fiskverð við einstaklinga í áhöfn. Skal ákvörðun nefndarinnar lögð til grund vallar fyrir dómi, nema svo sé ástatt sem um er rætt í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 53/1989, um samningsbundna gerðardóma. Hafi skip landað afla hjá aðila er telst skyldur útgerð eftir að máli var skotið til nefndarinnar en áður en úrskurður er upp kveðinn getur nefndin úrskurðað um aflahlut áhafnar vegna þess afla. Er sá úrskurður aðfararhæfur, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 53/1989.

9. gr.


    Þegar úrskurður er kveðinn upp ræður afl atkvæða úrslitum í úrskurðarnefnd. Um hæfi nefndarmanna til meðferðar einstaks máls og málsmeðferð að öðru leyti fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eftir því sem við getur átt.
    

10. gr.


    Nefndarmönnum er óheimilt að skýra óviðkomandi aðilum frá því sem þeir komast að í störfum sínum.
    

11. gr.


    Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði. Þó skulu heildarsamtök útvegs manna og sjómanna hver um sig bera kostnað af þeim fulltrúum sem hlutaðeigandi samtök hafa tilnefnt til setu í nefndinni.
    

12. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi 1.–9. gr. laga nr. 79 19. maí 1994, um samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna og um breytingu á lögum nr. 24 7. maí 1986, um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, með síðari breytingum.