Réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga

Mánudaginn 11. mars 1996, kl. 17:24:05 (3773)

1996-03-11 17:24:05# 120. lþ. 104.10 fundur 376. mál: #A réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga# frv. 65/1996, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur

[17:24]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Meiningin er auðvitað að reyna að forða fólki frá því að lenda í hakkavélinni. Til þess erum við nú að þessu. Greiðsluerfiðleikaleiðina athuguðum við mjög gaumgæfilega. Hún hefur ýmsa kosti en það eru líka ákveðnir ókostir á henni. Það þarf nefnilega tvo til að fara í greiðsluerfiðleika. Það þarf að fá lánardrottin til að samþykkja. Lánardrottinn getur komið í veg fyrir að farið yrði í greiðsluerfiðleikameðferð. Nauðasamningaleiðin hefur gefist vel í æðimörgum fyrirtækjum. Hins vegar hafa einstaklingar ekki getað nýtt sér hana. Ég held að mjög mörg fyrirtæki séu nú starfandi vegna þess að þau hafa gengið í gegnum nauðasamninga. Við skulum því ekkert fúlsa við þeirri leið heldur.