Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 12. apríl 1996, kl. 17:40:12 (4663)

1996-04-12 17:40:12# 120. lþ. 117.11 fundur 437. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðar krókabáta) frv. 105/1996, TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur

[17:40]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Virðulegi forseti. Skilyrði fyrir því að þarna sé um að ræða einhvers konar skref sem stigið er til sátta er þá það að verið sé að ganga leið réttlætisins í málinu en ekki verið að opna allar gáttir fyrir annan deiluaðilann og láta hinn borga brúsann. Það er því ekki hægt að lýsa þessu sem sáttatillögu og ég trúi því ekki að það muni verða sátt um þetta kerfi. Það er hins vegar hugsanlegur möguleiki að sá aðili sem hingað til hefur alltaf látið vaða yfir sína hagsmuni muni enn láta vaða yfir sína hagsmuni. Það er möguleiki en það er ekki sáttatillaga. Hún miðar heldur ekki að því að réttlætinu verði fullnægt.