[prenta uppsett í dálka] 124. fundur
Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt sem síðasti ræðumaður sagði að ég gæti verið sammála minnihlutaálitinu en jafnrétt er það að þeir gætu hafa skrifað undir samkomulag eða álit meiri hlutans með fyrirvara nákvæmlega eins og ég. Ég taldi þessa breytingu ekki vera það mikla að það þyrfti að flytja um það sérstakt álit nefndarinnar og þar greinir okkur kannski á. En þeir þingmenn sem skrifuðu undir álit minni hlutans hefðu getað skrifað undir álit meiri hlutans með fyrirvara.