Brunamálastofnun

Mánudaginn 29. apríl 1996, kl. 15:32:59 (5303)

1996-04-29 15:32:59# 120. lþ. 127.1 fundur 274#B Brunamálastofnun# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[15:32]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég er vanbúinn að svara þessari spurningu vegna þess að ég hef ekki alveg á reiðum höndum hvar sú vinna við yfirfærslu eða tilfærslu er stödd. Það er í því fólk á mínum vegum og frá umhvrn. Ég þyrfti að fá ráðrúm til þess að leita upplýsinga hjá því.

Ég vek athygli á því að nokkuð lifir enn þessa þings þannig að það er ekki öll nótt úti.