Háskóli Íslands

Þriðjudaginn 30. apríl 1996, kl. 15:28:35 (5378)

1996-04-30 15:28:35# 120. lþ. 128.1 fundur 217. mál: #A háskóli Íslands# (skrásetningargjald) frv. 29/1996, 218. mál: #A háskólinn á Akureyri# (skrásetningargjald) frv. 30/1996, Frsm. meiri hluta SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[15:28]

Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru aumar afsakanir hv. þm. og ég verð að segja að menn hjá Alþfl. hefðu þá mátt skoða málin betur fyrir fjórum árum. Hins vegar greinir okkur á um hvort hér sé um skrásetningargjald eða skólagjald að ræða og um það erum við einfaldlega ekki sammála.