Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Aðeins er farið að slá út í fyrir hv. þm. Guðmundi Hallvarðssyni en ég sagði ekki að við hefðum ekkert sinnt þeim öldruðu. Það sagði ég ekki. Ég sagði að aldraðir og öryrkjar hefðu ekki í neinu fengið að njóta þess stöðugleika sem hv. þm. talaði um að hefði ríkt á undanförnum árum. Við höfum ekki geitt þeim skuldina til baka, framlag þeirra sem varð m.a. til þess að stöðugleikinn myndaðist.