1996-05-06 17:00:49# 120. lþ. 131.4 fundur 286#B samningur um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, munnleg skýrsla utanríkisráðherra# (munnl. skýrsla), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 131. fundur

[17:00]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess að á fundi með formönnum þingflokka og forseta fyrr í dag varð samkomulag um tilhögun umræðunnar. Hún verður þannig að hæstv. utanrrh. og flokkur hans hafa 30 mínútur til umráða í tveimur umferðum. Aðrir þingflokkar hafa 20 mínútur og þá í tveimur umferðum og geta skipt milli umferða að vild.