Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Áður en gengið er til dagskrár fer fram utandagskrárumræða. Málshefjandi er hv. þm. Guðjón Guðmundsson og hæstv. sjútvrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða. Efni umræðunnar er hvalveiðar.
Forseti vill upplýsa áður en umræðan hefst að honum er kunnugt að mun fleiri þingmenn munu kveðja sér hljóðs og hafa komið þeim boðum til þingforseta en rúmast innan marka sem þingsköp ákveða. Forseti verður því að raða þingmönnum á mælendaskrána af sanngirni. Vonandi tekst honum það en hann mun skipta ræðumönnum eftir þingflokkum. Forseti leggur áherslu á að hv. þingmenn gæti tímamarka og fari alls ekki fram yfir þau. Það bitnar þá á þeim sem síðastir lenda á mælendaskránni.