[prenta uppsett í dálka] 135. fundur
Forseti (Sturla Böðvarsson):
Forseti vill tilkynna um utandagskrárumræðu sem mun hefjast kl. 13.30 í dag. Málshefjandi er Sighvatur Björgvinsson. Menntmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 50. gr. þingskapa. Gert er ráð fyrir að umræðan standi í eina og hálfa klukkustund. Umræðureglur verða að málshefjandi og ráðherra hafa 12 mínútur plús fimm mínútur og talsmenn annarra þingflokka átta mínútur. Aðrir þingmenn þrjár mínútur. Efni umræðunnar er skýrsla um endurskoðun á útvarpslögum.