Tóbaksverð í vísitölu

Mánudaginn 13. maí 1996, kl. 15:45:08 (5942)

1996-05-13 15:45:08# 120. lþ. 136.1 fundur 307#B tóbaksverð í vísitölu# (óundirbúin fsp.), SF
[prenta uppsett í dálka] 136. fundur

[15:45]

Siv Friðleifsdóttir:

Herra forseti. Ég beini fyrirspurn minni til hæstv. fjmrh. og ég spyr: Hvaða möguleika höfum við á því að taka tóbak út úr vísitölunni þannig að hægt sé að hækka verð á tóbaki verulega í forvarnaskyni?

Það er alveg ljóst að skaðsemi tóbaks er gífurlega mikil og það er trú mín að það verði bannað í framtíðinni að reykja tóbak. Beinn útlagður kostnaður heilbrigðiskerfisins er 450 millj., óbeinn trúlega upp á milljarða fyrir þjóðfélagið. Það er ljóst að reykingar eru að aukast, sérstaklega hjá ungu fólki. Við í heilbrigðisnefndinni skoðuðum að hækka tóbakið í forvarnaskyni, töldum okkur ekki fært vegna tæknilegra erfiðleika fyrir okkur að gera það. En ég spyr hæstv. ráðherra: Hvaða annmarka sér hann á því að taka tóbakið út úr vísitölunni þannig að hægt verði að hækka tóbakið í forvarnaskyni? Er það tæknilega ómögulegt að mati ráðherrans?