Tilhögun þingfundar

Föstudaginn 17. maí 1996, kl. 10:32:27 (6154)

1996-05-17 10:32:27# 120. lþ. 139.96 fundur 309#B tilhögun þingfundar#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 139. fundur

[10:32]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess um fundahaldið að þegar afgreidd hafa verið fjögur fyrstu dagskrármálin verður settur nýr fundur. Þá verður 3. dagskrármálið tekið fyrir til 3. umr. ef leyft verður og síðan 5.--9. dagskrármál. Forseti biður þingmenn jafnframt að vera viðbúna atkvæðagreiðslum eftir því sem fram vindur málunum á dagskránni, að minnsta kosti fram að hádegi.