Umgengni um nytjastofna sjávar

Föstudaginn 17. maí 1996, kl. 13:09:37 (6181)

1996-05-17 13:09:37# 120. lþ. 140.4 fundur 249. mál: #A umgengni um nytjastofna sjávar# frv. 57/1996, GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 140. fundur

[13:09]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég held að fyrsta skrefið sé að reyna að átta sig á því hvert umfangið er. Þess vegna hvet ég til rannsókna á þessu fyrirbæri. Í öðru lagi má reyna eins og hér hefur komið fram í umræðunni, að koma með alvarlegar tilraunir til að reyna að taka á þessu. Á grundvelli þess má meta hvort vandamálið sé það alvarlegt að það beri að leggja kvótakerfið af. Ég tel að þetta verði að skoðast í samhengi. Það er alveg rétt að það má skilja fiskveiðistefnu Kvennalistans þannig að hún sé stuðningur við aflamarkskerfið. En okkar hugmyndir eru allt annars konar útfærsla eins og alþjóð veit, m.a. byggðakvótar og annað slíkt. Einnig teljum við að það sé mikill ágalli á kerfinu að 1. gr. fiskveiðistjórnunarlaganna sé ekki virt eins og þetta kerfi er framkvæmt í dag. Við teljum að að öllu þessu samanlögðu verði að endurskoða þessa stefnu og það höfum við margoft sagt.