Meðferð landbúnaðarráðuneytisins á malartökuleyfi Vatnsskarðs hf.

Föstudaginn 24. maí 1996, kl. 14:21:56 (6555)

1996-05-24 14:21:56# 120. lþ. 148.91 fundur 318#B meðferð landbúnaðarráðuneytisins á malartökuleyfi Vatnsskarðs hf.# (umræður utan dagskrár), SvG
[prenta uppsett í dálka] 148. fundur

[14:21]

Svavar Gestsson:

Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi þakka ég hv. þm. Lúðvík Bergvinssyni fyrir að hreyfa þessu máli og ég tek undir það sem hefur komið fram að málið er allt sérkennilegt og ýmsum spurningum, sem hér hafa vaknað, hefur ekki verið svarað.

Fyrsta spurningin er sú hvort hér er almennt rétt farið með mál sem lúta að úthlutun námuréttinda og það vekur upp þá spurningu hvort ekki er nauðsynlegt að endurskoða gildandi lög í þessum efnum til að koma í veg fyrir slugs í Stjórnarráðinu með mál af þessu tagi. Ég hvet til þess að menn velti því alvarlega fyrir sér.

Í öðru lagi tek ég undir með hv. þm. Sighvati Björgvinssyni að það er mjög skrýtið að landbrn. skuli vera með þetta mál, ég átta mig ekki alveg á því, vegna þess að að er iðnrn. sem fer með námuréttindi yfirleitt og framkvæmd námulaganna sem slíkra. Þau hafa að vísu verið rædd áður á þessu þingi þar sem komið hefur í ljós að hlutirnir eru ekki nógu skýrir af hálfu Stjórnarráðsins. Ég hvet til þess að þessi valdmörk verði skoðuð og þetta atriði og meðferð þessa máls sérstaklega verði skoðað.

Í þriðja lagi er kemur gríðarlega alvarlegur áburður fram í þessum umræðum, þ.e. að þarna hafi e.t.v. verið skotið undan peningum sem ella hefðu átt að lenda í ríkissjóði. Það er náttúrlega gríðarlega alvarlegt mál. Þá hvet ég í síðasta lagi til þess að hv. fyrirspyrjandi geri fyrirspurn sína skriflega þannig að hæstv. ráðherra geti lagt fram í skrifuðu formi öll gögn málsins til þess að þingheimur megi átta sig á því hvað er á ferðinni.