[prenta uppsett í dálka] 151. fundur
Forseti (Sturla Böðvarsson):
Forseti mun gera ráðstafanir til þess að hægt verði að uppfylla óskir hv. þm. Það er ljóst að hæstv. samgrh. er ekki í húsinu vegna sérstakra verkefna sem hann þurfti að sinna á þessum tíma. En forseti mun gera ráðstafanir til þess að hv. formaður samgn. verði við umræðuna. Innan tíðar mun hæstv. samgrh. koma í þinghúsið. Forseti mun því gera 10 mínútna hlé á þessum fundi að ósk hv. 17. þm. Reykv. sem nú er á mælendaskrá, en fundur hefst þá aftur kl. 13:45.