Tilhögun þingfundar

Þriðjudaginn 04. júní 1996, kl. 10:03:02 (7144)

1996-06-04 10:03:02# 120. lþ. 160.97 fundur 343#B tilhögun þingfundar#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 160. fundur

[10:03]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Um fundarhaldið í dag vill forseti taka fram að kl. 12 á hádegi fer fram utandagskrárumræða. Málshefjandi er Rannveig Guðmundsdóttir og starfandi félmrh., Guðmundur Bjarnason, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða og efni umræðunnar er málefni fatlaðra.

Síðan verður gert matarhlé milli kl. hálfeitt og eitt. Kl. eitt verður önnur utandagskrárumræða. Málshefjandi er Ásta B. Þorsteinsdóttir og heilbrrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða og efni umræðunnar er fjárhagsstaða sjúkrahúsanna og sumarlokanir.

Þá er gert ráð fyrir að að lokinni þeirri utandagskrárumræðu fari fram atkvæðagreiðslur um mál sem þá kunna að hafa hlotið umfjöllun og afgreiðslu, að minnsta kosti um fyrstu tvö dagskrármálin, stjórn fiskveiða og Þróunarsjóð sjávarútvegsins.