Frumvarp um heilbrigðisþjónustu

Þriðjudaginn 04. júní 1996, kl. 10:13:50 (7151)

1996-06-04 10:13:50# 120. lþ. 160.93 fundur 340#B frumvarp um heilbrigðisþjónustu# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 160. fundur

[10:13]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Nokkrir hv. þingmenn hafa kvatt sér hljóðs um störf þingsins og fá þeir að sjálfsögðu orðið. En forseti vill ítreka það sem hann hefur sagt að þetta mál verður rætt sérstaklega við formenn þingflokka áður en það kemur til umræðu á fundinum í dag. Það verður gert.

Um 15. málið, stjórnarskipunarlög. Ástæðan fyrir því að það er hér á dagskrá eru mjög eindregin tilmæli 1. flm., hv. 13. þm. Reykv., Jóhönnu Sigurðardóttur, að hún fái að mæla fyrir málinu en það stendur ekki til að það fari lengra en til nefndar og við þeirri beiðni hefur forseti orðið.